Erlent

Minni kjarnorkustarfsemi

Ný skýrsla Mohammed ElBaradei, yfirmaður IAEA í Vín.
Ný skýrsla Mohammed ElBaradei, yfirmaður IAEA í Vín. AP

Í nýrri skýrslu Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar, IAEA, segir að Íranar framleiði minna kjarnorkueldsneyti en búist hefði verið við. Þar segir einnig að stjórnvöld í Teheran hefðu „tekið verulegt skref“ í átt að því að útskýra þau atriði í kjarnorkustarfsemi sinni sem vakið hefðu tortryggni á liðnum misserum.

Þess er vænst að skýrslan muni gera bandarískum ráðamönnum erfiðara fyrir að safna stuðningi við nýjar refsiaðgerðir gegn Íran.

Þó er jafnframt staðfest í skýrslunni að Íranar hafi haldið áfram að auka auðgun úrans, þvert á ályktanir Öryggisráðs SÞ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×