Erlent

Lífi dauðadæmds þyrmt

Taka átti Kenneth Foster, sem var ökumaður flóttabíls í vopnuðu ráni sem endaði með mannsdrápi, af lífi í fangelsi í Texas í fyrrinótt, en Rick Perry, ríkisstjóri Texas, ákvað á elleftu stundu að dómnum skyldi breytt í lífstíðarfangelsi.

Mikil mótmæli höfðu verið gegn fyrirhugaðri aftöku Fosters. Larry Cox, talsmaður Amnesty International, sagði aftöku manns, sem ekki hleypti af skoti, vera „hneykslanlega misbeitingu laganna“. Aftaka Fosters hefði orðið sú 24. í Texas í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×