Gül heitir að virða hin veraldlegu gildi 29. ágúst 2007 03:00 Orðinn forseti. Abdullah Gül kampakátur eftir kjörið í Ankara í gær. AP
Sanntrúaður múslimi með rætur í stjórnmálahreyfingu sem vill blanda íslamstrú í stjórnmálin var í gær kjörinn forseti Tyrklands. Kjör hans markar mikinn sigur fyrir hinn trúarlega sinnaða stjórnarflokk, Réttlætis- og þróunarflokkinn (AKP), eftir mánaðalanga togstreitu við veraldarhyggjusinna í hinni rótgrónu stjórnmálaelítu landsins. Abdullah Gül hlaut 339 atkvæði í þriðju og síðustu atkvæðagreiðslulotunni á tyrkneska þjóðþinginu í Ankara. Er þingforsetinn, Koksal Toptan, tilkynnti þetta braust út mikið lófatak í salnum. Eftir að hafa svarið embættiseið sem ellefti forseti tyrkneska lýðveldisins bar Gül í ávarpi lof á hið veraldlega stjórnkerfi landsins og hét að hafa hin veraldlegu gildi þess í heiðri. "Veraldarhyggja " ein af grundvallarreglum lýðveldis okkar " er forsenda fyrir félagslegum friði og er jafnframt frelsandi snið fyrir ólíkan lífsstíl," sagði Gül. "Svo lengi sem ég verð forseti mun ég líta á mig sem fulltrúa allra borgara lýðveldisins jafnt. Ég mun gæta hlutleysis af ítrustu gætni." Kjör Güls fór fram daginn eftir að yfirmaður tyrkneska heraflans birti afdráttarlausa viðvörun um að veraldlegum gildum lýðveldisins væri ógnað. Herinn hefur steypt fjórum ríkisstjórnum í landinu frá því árið 1960, í nafni þess að standa vörð um þessi gildi. Framboð Güls til forseta fyrr á árinu mætti mikilli andstöðu " meðal annars á milljón manna mótmælafundi " vegna ótta um að hann vildi grafa undan hinum veraldlegu hefðum ríkisins. Það var ekki síst vegnaforsetakjörskreppunnar í vor sem Recep Tayyip Erdogan boðaði til þingkosninga í sumar, sem lyktaði með öðrum stórsigri flokks hans. "Þjóð vor hefur horft upp á hegðun þessara aðskilnaðarsinna sem geta ekki sætt sig við einhyggjueðli ríkisins, og miðstöðva hins illa sem með kerfisbundnum hætti reyna að grafa undan veraldlegu eðli tyrkneska lýðveldisins," skrifaði Yasar Büyükanit, yfirmaður heraflans, í orðsendingu sem birt var á vef hersins í fyrradag. Erdogan forsætisráðherra og náinn samherji Güls fagnaði kjöri hans. Hamingjuóskir bárust einnig frá leiðtogum Evrópusambandsins og víðar að úr heiminum. Sem utanríkisráðherra hefur Gül verið í forystu fyrir undirbúningi Tyrklands að inngöngu í Evrópusambandið.
Mest lesið Sumarstarfsmaður stal sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands Innlent Gríðarlegur verðmunur á þyngdarstjórnunarlyfjum Innlent Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Innlent „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Erlent Fisk rekur á land á Stokkseyri – Fólk sækir sér í soðið Innlent Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Erlent Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Soham-morðinginn látinn Erlent „Ég tel þetta ekki vera ákveðna höfnun á Alexöndru“ Innlent Fleiri fréttir „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Sjá meira