Mafíumorðalda sem hófst með eggjakasti 29. ágúst 2007 05:30 Kista hins átján ára gamla Tommaso Venturi borin til grafar í Mülheim, nærri Duisburg á föstudaginn. Tommaso var myrtur ásamt fimm öðrum Ítölum í Duisburg þann 15. ágúst. AP
Þýska lögreglan gerði húsleit á fleiri tugum heimila í mörgum borgum í Þýskalandi á föstudaginn í tengslum við rannsóknina á morðum á sex Ítölum í Duisburg hinn 15. ágúst. Þýska lögreglan yfirheyrði tugi manna sem voru á heimilunum þar sem leitin var gerð. Lögreglan efndi til rassíunnar eftir að hafa fengið um 380 vísbendingar frá þýskum almenningi. Lögreglan í Þýskalandi greindi einnig frá því að sexmenningarnir hefðu verið myrtir með tveimur byssum en vildi ekki skýra frá því hvaða gerðar þær voru. Talið er að tveir menn hafi framið morðin og birti þýska lögreglan myndbandsupptöku á netinu þar sem þeir sjást flýja af morðstaðnum. Talið er að morðin hafi verið hluti af fæðardeilu á milli tveggja hópa í ítölsku Ndrangheta-glæpasamtökunum frá Kalabríu, Pelle-Vottari og Nirta-Strangio. Sexmenningarnir voru bornir til grafar fyrir helgi. Fimm þeirra voru jarðaðir í San Luca í Kalabríu á Suður-Ítalíu og var ítalska lögreglan með mikinn viðbúnað af ótta við að hefnda yrði leitað. Sá sjötti, hinn átján ára gamli Tommaso Venturi, var jarðsettur nærri Duisburg á föstudaginn. Mennirnir voru skotnir í höfuðið eftir að hafa komið út af pitsustað í miðborg Duisburg þar sem þeir voru að fagna átján ára afmæli Tommaso. Einn af hinum myrtu er talinn hafa tekið þátt í að myrða Maríu Strangio, eiginkonu leiðtoga Nirta-Strangio-hópsins, Giovanni Nirta, í desember í fyrra. Talið er að sexmenningarnir hafi verið myrtir til að hefna fyrir morðið á Maríu. Þegar fréttaritari ítalska dagblaðsins Corriere della Sera spurði Giovanni fyrr í mánuðinum, á heimili hans í San Luca, hvort hann væri leiðtogi hópsins sagði hann. "Er ég leiðtoginn? Sérðu vopn hér í húsinu mínu? Þið sjáið það sjálfir að húsið mitt er ekki girt af, það þarf ekki að fara í gegnum nein öryggishlið til að komast að því. Ég er bara bóndi sem ræktar jörðina og ver frístundum mínum með börnunum mínum. Frá því í janúar hef ég varla farið út úr húsi því ég hef verið að syrgja konuna mína." Talið er að morðingjar Maríu hafi ætlað að drepa Giovanni í árásinni. Fimmtán hafa nú þegar látið lífið í fæðardeilunni á milli hópanna tveggja sem hófst árið 1991. Þá fóru tveir ungir menn inn á bar eins leiðtoga hins hópsins í San Luca og köstuðu eggjum. Mennirnir tveir voru drepnir stuttu síðar og hefur verið hefnt á víxl síðan.
Mest lesið Sumarstarfsmaður stal sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands Innlent Gríðarlegur verðmunur á þyngdarstjórnunarlyfjum Innlent Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Innlent „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Erlent Fisk rekur á land á Stokkseyri – Fólk sækir sér í soðið Innlent Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Erlent Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Soham-morðinginn látinn Erlent „Ég tel þetta ekki vera ákveðna höfnun á Alexöndru“ Innlent Fleiri fréttir „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Sjá meira