Enski boltinn

Lítið að segja um Eið Smára

Eiður Smári fer varla til West Ham í bráð.
Eiður Smári fer varla til West Ham í bráð. MYND/Getty

Alan Curbishley, knattspyrnustjóri West Ham, tók undir ummæli Eggerts Magnússonar, stjórnarformanns síns, þegar hann var spurður um áhuga sinn á íslenska landsliðsfyrirliðanum Eiði Smára Guðjohnsen í gær. Eggert hafði áður staðfest að ákveðnar viðræður hefðu átt sér stað við Eið en það væri með öllu óvíst hvort félagið geri Barcelona tilboð í leikmanninn.

„Eiður er meiddur og er að berjast við að koma sér í leikform og það er því lítið um málið að segja á þessum tímapunkti. Hann er ennþá leikmaður Barcelona,“ sagði Curbishley.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×