Dramatík á Goodison Park - United í vænlegri stöðu 28. apríl 2007 13:49 NordicPhotos/GettyImages
Manchester United er komið í afar vænlega stöðu í toppbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni eftir að liðið vann ótrúlegan sigur á Everton á útivelli í dag 4-2 eftir að hafa lent undir 2-0. Á sama tíma gerði Chelsea 2-2 jafntefli við Bolton á heimavelli og því er forysta United orðin fimm stig á toppnum þegar aðeins þrír leikir eru eftir. Everton náði forystu eftir aðeins 12 mínútur þegar aukaspyrna Alan Stubbs hrökk af Michael Carrick og í netið. Staðan var 1-0 fyrir heimamenn í hálfleik og Everton fékk sannkallaða draumabyrjunn í síðari hálfleiknum þegar Manuel Fernandes kom liðinu í 2-0 á 50. mínútu. John O´Shea minnkaði muninn fyrir United skömmu síðar eftir varnarmistök Ian Turner og eins og til að auka á dramatíkina var það svo fyrrum leikmaður Manchester United - Phil Neville - sem jafnaði metin með sjálfsmarki. Wayne Rooney fullkomnaði frábæran endasprett gestanna með marki á 79. mínútu og varamaðurinn Chris Eagles tryggði sigurinn í blálokin eftir sendingu frá Rooney. Sir Alex Ferguson dansaði stríðsdans af fögnuði á hliðarlínunni og veit að nú getur fátt komið í veg fyrir að hans menn fari með sigur af hólmi í deildinni. Bolton komst yfir í leiknum gegn Chelsea á Stamford Bridge þegar Lubomir Michalik skoraði í sínum fyrsta leik í byrjunarliði. Salomon Kalou jafnaði skömmu síðar fyrir Chelsea og öflugur skalli hans hrökk svo af Jaaskelainen markverði og í netið á 34. mínútu. Heimamenn voru yfir 2-1 í hálfleik, en Kevin Davies jafnaði fyrir Bolton á 54. mínútu og setti stórt strik í reikninginn fyrir Englandsmeistarana. Bolton var í miklum vandræðum með meiðsli fyrir leikinn og var án sex fastamanna.
Enski boltinn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira