Erlent

Síðasta herdeild Dana fer heim

Sjö af átta herdeildum Dana í Írak hafa yfirgefið landið. Síðasta herdeildin átti að yfirgefa landið í dag en flugvélin sem flytja átti hermennina til Kúveit er ónýt. Því er beðið eftir nýrri vél. Þetta kemur fram í fréttum TV2/Nyhederne í Danmörku.



Þegar síðasta herdeildin yfirgefur Írak telst hernaðaraðgerðum Dana í landinu lokið. Þó mun um 50 manna hópur vera eftir til ársloka. Hópurinn mun stjórna herþyrlum til að styðja við hersveitir Breta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×