Erlent

Líbía fær ógrynnin öll fyrir fangana sex

Frakklandsforseti heimsótti Líbíuleiðtoga nú í vikunni til að ganga frá samningum í kjölfar framsals búlgörsku fanganna.
Frakklandsforseti heimsótti Líbíuleiðtoga nú í vikunni til að ganga frá samningum í kjölfar framsals búlgörsku fanganna. fréttablaðið/AFP

Bandaríkin, Evrópusambandið og Búlgaría stóðu árum saman í erfiðum en að mestu leynilegum samningaviðræðum við stjórn Moammars Gaddafi í Líbíu um örlög búlgörsku hjúkrunarfræðinganna fimm og palestínska læknisins, sem framseld voru til Búlgaríu í byrjun vikunnar.



Skriður virðist þó ekki hafa komist á málin fyrr en eftir að Nicolas Sarkozy var kosinn Frakklandsforseti. Bæði hann og Cecilia eiginkona hans þykja hafa unnið nokkuð afrek með því að leiða málið til lykta.



Í gær fordæmdu hins vegar ættingjar líbísku barnanna, sem smituðust af alnæmisveirunni fyrir tíu árum, ákvörðun forseta Búlgaríu um að náða hjúkrunarfólkið. Stjórnvöld í Líbíu komu sömuleiðis mótmælum á framfæri við sendiráð Búlgaríu í gær þar sem náðunin er sögð vera „brot á samkomulagi“ milli landanna, og kröfðust opinberrar skýringar.



Boris Velchev, aðalsaksóknari í Búlgaríu, vísaði þessum mótmælum þegar í stað á bug og sagði ekkert athugavert við náðun fanganna.

Margt hefur verið óljóst um samningana sem leiddu til þess að Líbía féllst á að framselja fangana til Búlgaríu en þau mál hafa þó verið að skýrast á síðustu dögum.



Hjúkrunarfólkið var ekki framselt frá Líbíu til Búlgaríu fyrr en ættingjar barnanna, samtals 460 fjölskyldur, höfðu síðastliðinn sunnudag fengið greitt jafnvirði 60 milljóna króna hver, auk þess sem Evrópuríki höfðu veitt tryggingar fyrir því að börnin myndu hljóta viðeigandi læknismeðferð eftir því sem þörf krefur allt til æviloka.



Ekki er vitað hvaðan peningarnir sem ættingjarnir fengu er komið, samtals 460 milljónir dala, en Sarkozy þykir hafa gefið ákveðna vísbendingu um það þegar hann hrósaði stjórnvöldum í Katar fyrir að hafa átt stóran þátt í að leysa málið.



Á miðvikudaginn, þegar Sarkozy var í heimsókn hjá Gaddafi, voru undirritaðir samningar milli Frakklands og Líbíu um samstarf á fjölmörgum sviðum, meðal annars um kjarnorkuvinnslu. Evrópusambandið hefur einnig fallist á að veita Líbíu margvíslega aðstoð og bauð einnig aukin viðskiptatengsl.



Þá sagðist Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ætla að bregða sér til Líbíu á næstunni. „Ég veit að bandarísk fyrirtæki hafa mikinn áhuga á að starfa í Líbíu,“ sagði hún.



Forsætisráðherra Búlgaríu, Sergei Stanishev, segir vel koma til greina að afskrifa allar skuldir Líbíu við Búlgaríu, en þær nema meira en sem svarar þremur milljörðum króna.



Stanishev leggur þó mikla áherslu á að það yrði gert af mannúðarástæðum, en alls ekki megi líta á það sem „greiðslu lausnargjalds eða viðurkenningu á sekt“ hjúkrunarfólksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×