Enginn glansfótbolti hjá FH sem kláraði verkefnið örugglega 26. júlí 2007 00:30 FH er komið örugglega áfram í aðra umferð eftir 4-1 sigur á HB, samanlagt. fréttablaðið/daníel
FH og HB gerðu markalaust jafntefli í síðari leik liðanna í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í Færeyjum í gær. FH vann leikinn 4-1 og er þar með komið áfram en leikurinn í gær þótti ekki mikið fyrir augað. „Þetta var enginn glansfótbolti, einhverjir myndu kalla þetta vinnusigur,“ sagði Guðlaugur Baldursson, sem gegndi stöðu aðstoðarþjálfara hjá FH í gær í fjarveru Heimis Guðjónssonar. „Þetta var frekar jafn leikur en við kannski ívið sterkari. Við fórum varlega inn í leikinn og sáum hvað þeir ætluðu að gera en þeir ógnuðu okkur ekki mikið. Þeir sóttu ekki mikið og færðu sig ekki framarlega á völlinn og því vorum við frekar rólegir í leiknum. Við hefðum getað sett mark eða mörk á þá þegar leið á leikinn,“ sagði Guðlaugur sem sýndist sem leikmenn HB væru nánast búnir að gefast upp fyrir leikinn enda þremur mörkum undir eftir fyrri leikinn. „Maður fékk það svolítið á tilfinninguna að þeir vildu bara ekki fá á sig mörg mörk og því voru þeir mjög varfærir í sínum aðgerðum. FH var að spila ágætlega, betur í þeim síðari en í fyrri hálfleik. Þá héldum við boltanum ágætlega og þeir lentu í erfiðleikum þegar við náðum að halda boltanum. Við ákváðum bara að vera ekki að gera neina skandala í þessu og það tókst,“ sagði Guðlaugur.“ Íslandsmeistararnir mæta FC Bate frá Hvíta-Rússlandi í næstu umferð. Hún byrjar strax í næstu viku og verður lokið 8. ágúst en endanlegar dagsetningar á leikina eru ekki komnar í ljós. Bate er meistaraliðið í sínu landi og er byggt nánast algjörlega upp á heimamönnum. Þeir hafa sterkan heimavöll en Alexander Hleb, sem nú leikur með Arsenal, gerði garðinn frægan hjá félaginu á uppvaxtarárum sínum. Það er ljóst að ærið verkefni bíður FH í næstu umferð.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tíu hlaupa enn í Bakgarðshlaupinu eftir sólarhring Sport Lærði að ganga og tala upp á nýtt: „Þessi röskun er ekkert grín“ Sport Rændu sínu liði titilfögnuði og eiga yfir höfði sér lífstíðarbann Fótbolti „Eitt allra eftirminnilegasta íþróttalið síðasta áratuginn“ Handbolti Vilja banna landsliðsþjálfurum að þjálfa félagslið Handbolti Elísa rétt missti af silfri: „Svo kemur þetta helvítis sikk sakk“ Sport Orri áfram heitur á Spáni Fótbolti Sjáðu mörkin: Frábær Doku og aukaspyrnan sem rúllaði í mark Liverpool Enski boltinn Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Fótbolti Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Körfubolti Fleiri fréttir Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 2-3: Halda áfram að kremja mótherjana eins og skordýr Fylgist ekki með umræðunni um starf sitt: „Maður er samt ekkert vitlaus“ Bragi Karl skoraði í fyrsta sigri Njarðvíkinga Ólafur Ingi hundfúll „Ég er búinn að vera að bíða lengi eftir þessu tækifæri“ Umfjöllun: Breiðablik - FH 3-3 | Sex marka jafntefli í Kópavogi Uppgjörið: Fram - Valur 3-2 | Byström kom inná og skoraði sigurmark í þriðja sigri Fram í röð Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Þór 6-0 | Nýliðar teknir í kennslustund Hræðileg en sanngjörn úrslit: „Við þurfum að vera aðeins stærri“ „Þá verðum við á góðum stað“ „Þú varst ekki frekari en ég, það er aldrei að fara að gerast“ „Trúðurinn“ fyrir norðan: „Þessi maður á bara að skammast sín“ Sjáðu Andreu skora tvisvar beint úr horni og systurnar svara „Fannst þeir allt eins geta sleppt því að hafa mig“ Uppgjörið: Víkingur-Breiðablik 2-4 | Rigndi mörkum í Víkinni „Fá svo einhvern trúð hérna klappandi í andlitið á mér, það hjálpaði ekki“ FH - Grindavík/Njarðvík 2-1 | Fyrsti sigur FH kom gegn nýliðunum „Hefði átt að stela þessu í lokin“ „Vestmannaeyjakarakterinn sem skóp þetta“ Þór/KA - Stjarnan 2-2 | Sterk endurkoma hjá norðankonum Valur – ÍBV 2-3 | Nýliðarnir á toppnum með fullt hús stiga „Ekkert grín heldur algjörlega fáránlegt“ Þrumuræða Óskars Hrafns: „Kremja þá eins og fokking skordýr undir sólanum á okkur“ „Svo hringdi kærastan mín og ég er búinn að vera hér síðan“ Uppgjörið: Fram - Þróttur 0-3 | Þróttur áfram á sigurbraut en Fram ennþá án stiga Vildi fara heim: Seldur aftur til Þróttar eftir aðeins fimm mánuði í FH Sjá meira