Erlent

Vill efla tengslin við Líbíu

NICHOLAS SARKOZY
NICHOLAS SARKOZY

Nicholas Sarkozy Frakklandsforseti fór í opinbera heimsókn til Líbíu í gær. Með heimsókninni er talið að Sarkozy sé að verðlauna Muammar Gaddafi Líbíuforseta eftir að hann sleppti fimm búlgörskum hjúkrunarfræðingum og einum palestínskum lækni úr haldi á þriðjudag. Fólkið hafði verið í haldi í landinu í átta ár eftir að hafa verið dæmt tvívegis fyrir að hafa smitað um 400 líbísk börn með HIV-veirunni.



Stjórnvöld í Líbíu slepptu fólkinu úr haldi í skiptum fyrir efnahagsaðstoð frá Evrópusambandinu og aukin viðskiptatengsl. -




Fleiri fréttir

Sjá meira


×