Erlent

Hundruð dóu í síðasta mánuði

Um 430 manns hafa látist úr hungri í Norður-Kóreu á síðustu vikum. Þetta fullyrða hjálparsamtökin Góðir vinir, sem hafa bækistöðvar í Suður-Kóreu.



Ástandið er verst í norðurhluta landsins. Stjórnvöld í Norður-Kóreu segja dauðsföllin stafa af sjúkdómum, en hjálparsamtökin fullyrða að ástæðan sé næringarskortur til langframa.



Stjórnvöld í Suður-Kóreu gátu ekki staðfest þessar fullyrðingar, en sumar fyrri fullyrðingar hjálparsamtakanna um ástandið í Norður-Kóreu hafa síðar fengist staðfestar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×