Erlent

Sjötíu ár frá hreinsununum

Kalina með mynd af föður sínum, Ignaty Kalín, einum af fórnarlömbum Stalíns.
Kalina með mynd af föður sínum, Ignaty Kalín, einum af fórnarlömbum Stalíns.

Rússar minntust þess í gær að 70 ár voru liðin frá því að „hreinsanirnar miklu“ hófust árið 1937, þegar milljónir manna voru, samkvæmt skipunum frá Jósef Stalín, sagðar „óvinir ríkisins“ og ýmist teknar af lífi án dóms og laga eða sendar í fangabúðir.



Nokkur hundruð manns komu saman á Rauða torginu í Moskvu, allt börn fórnarlambanna, lögðu blóm á stéttina og kveiktu á kertum til að minnast fórnarlamba þessa myrkasta tímabils í sögu Sovétríkjanna.



Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði í síðasta mánuði að Rússar ættu ekki að skammast sín fyrir þetta tímabil, því „verri hlutir hafa gerst í öðrum löndum“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×