Erlent

Hugðist selja eitraðan fisk

Lögreglan í Taílandi handtók á dögunum mann sem hugðist selja meira en tonn af eitruðum kúlufiski til veitingastaða þar sem gera átti fiskibollur úr kúlufisknum. Árið 2002 létust sex Taílendingar eftir að hafa borðað kúlufisk og var þá sala á honum bönnuð í landinu.



Eitrið er í ákveðnum hlutum fisksins og í Japan sækjast hugaðir sælkerar eftir að borða kúlufisk, sem þeir kalla fugu. Þeir telja eitrið auka bragðskerpu fisksins.



Árlega eru skráð tilfelli þar sem fólk veikist eða deyr eftir að hafa borðað kúlufisk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×