Erlent

Sérfræðingar SÞ til N-Kóreu

Yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar segir að sérfræðingar frá kjarnorkueftirliti SÞ fari til N-Kóreu á næstu vikum.
Yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar segir að sérfræðingar frá kjarnorkueftirliti SÞ fari til N-Kóreu á næstu vikum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

Kjarnorkueftirlit Sameinuðu þjóðanna ætlar að senda sérfræðinga til Norður-Kóreu til að hafa umsjón með lokun helsta kjarnorkukljúfs landsins, Yongbyon, segir Mohammed Elbaradei, forseti Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar.



ElBaradei segir að óvíst sé hvenær sérfræðingarnir muni fara til Norður-Kóreu, það velti á því hvenær stjórnvöld í landinu bjóði þeim að koma. Hann segist búast við því að það verði innan tveggja vikna og að ekki muni taka langan tíma að loka kljúfinum.



Stjórnvöld í Norður-Kóreu skrifuðu í febrúar undir afvopnunarsamning við Bandaríkin, Suður-Kóreu, Rússland, Kína og Japan sem fól í sér að þau ættu að loka kljúfinum í skiptum fyrir margháttaða efnahagsaðstoð. Þau neituðu hins vegar að standa við samninginn vegna þess að Bandaríkjastjórn frysti bankareikning þeirra í Macau vegna meints peningaþvættis.



Sú deila leystist í síðustu viku og lofaði Norður-Kórea að standa við samninginn ef þeir fengju fyrstu tíu prósent af þeim 50 þúsund tonnum af hráolíu sem þeir eiga að fá samkvæmt afvopnunarsamningnum. Áætlað er að olíusendingin berist til Norður-Kóreu seinni hluta vikunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×