Erlent

Gæti tafist að sleppa sjóliðakonu

Oddur Ástráðsson skrifar

Það gæti tafist að einu konunni í hópi 15 breskra sjóliða verði sleppt. Íranar höfðu lofað að sleppa konunni, Faye Turney en ætluðu enn að halda hinum sjóliðunum 14. Íranar vara Breta við að baka ekki frekari vandræði, annars geti þetta orðið niðurstaðan. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir háttsettum embættismanni í Íran.

Breska varnarmálaráðuneytið sagðist í gær hafa undir höndum gögn úr staðsetningatækjum sem sanni að sjóliðarnir hafi verið Íraks-megin í flóanum og handtökurnar því með öllu óréttlætanlegar. Blair forsætisráðherra hafði áður sagt að ef friðsamlegar leiðir dygðu ekki til að fá sjóliðana lausa yrði gripið til annara og harðari aðgerða, sem hann útlistaði þó ekki frekar. Íranar hafa hins vegar haldið því fram að sjóliðarnir hafi verið í íranskri lögsögu í óleyfi og segjast ekki munu sleppa þeim fyrr en Bretar hafi viðurkennt það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×