Erlent

Svisslendingur í 10 ára fangelsi fyrir að móðga Tælandskonung

AFP

Svisslendingur að nafni Oliver Jufer var í gær dæmdur í 10 ára fangelsi í Tælandi fyrir að móðga konung þarlendra. Jufer var tekinn fastur í desember síðastliðnum ölvaður að krota myndir af konungnum á húsvegg í borginni Chiang Mai.

Hann játaði á sig sakir fyrir rétti og varð það honum til refsilækkunar. Hámarks fangelsisdómur fyrir móðgun við konung Tælendinga er 20 ár. Jufer er fyrsti útlendingurinn sem dæmdur er fyrir þessar sakir, hingað til hafa þeir sem gerst hafa sekir um slíkt verið sendir úr landi.

Jufer sem er 75 ára hefur mánuð til að áfrýja dómnum en lögspekingar BBC segja að hans eina von sé nú náðun konungs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×