Erlent

Maradona fékk aðsvif og fór á spítala

AFP

Argentínska knattspyrnugosögnin Diego Maradona fékk skyndilega aðsvif í gær og var kallað á sjúkrabíl sem ók honum í skyndi á heilsugæslustöð. Sýnt var beint frá för sjúkrabílsins úr argentínskum sjónvarpsþyrlum. Ekki er enn vitað nákvæmlega hvað var að hrjá kappann en hann er ekki alvarlega veikur. Maradona, sem er 47 ára er lifandi goðsögn í heimalandi sínu. Maradona leiddi þjóð sína til sigurs á heimsmeistaramótinu í fótbolta í Mexíkó árið 1986.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×