Áfengis- og klámbann á meðal frumbyggja 22. júní 2007 05:30 Leam Robertsson elst upp í fátæku frumbyggjasamfélagi þar sem félagsleg vandamál eru alltof algeng. nordicphotos/afp
Stjórnvöld í Ástralíu kynntu í gær áætlun um að banna áfengi og klám á svæðum frumbyggja í norðurhluta Ástralíu til þess að sporna við misnotkun á börnum sem er útbreidd meðal frumbyggja samkvæmt opinberri skýrslu sem kynnt var í síðustu viku. Forsætisráðherra Ástralíu, John Howard, boðaði hertari reglur um velferðarbætur til frumbyggja til þess að taka á því sem hann sagði „neyðarástand í landinu". „Við erum að fást við hóp ungra Ástrala sem hafa aldrei kynnst hugtakinu sakleysi æskunnar." Samfélagsinnviðir frumbyggja eru að gliðna í sundur vegna ofdrykkju, atvinnuleysis, fátæktar og fleiri þátta samkvæmt skýrslunni. Ofdrykkja er sögð meginorsök fyrir vanrækslu barna sem skapi tækifæri fyrir barnaníðinga. Verði áætlunin samþykkt verður sala, eign og flutningur áfengis bannaður í sex mánuði. Gróft klám, sem mikið framboð er af meðal frumbyggja samkvæmt skýrslunni, verður einnig bannað. Fram kemur að börn, sem hafi greiðan aðgang að grófu klámi, séu mörg með brenglaða mynd af kynlífi vegna þess. Nokkrir leiðtogar frumbyggja fordæmdu þegar áætlunina og sögðu hana forsjárhyggju stjórnvalda sem hefðu skert réttindi þeirra og skapað hin félagslegu vandamál sem plaga samfélag frumbyggja. Þeir gagnrýndu einnig að ekkert samráð hafi verið haft við þá og mótmæltu fyrirhuguðum hömlum á hvernig frumbyggjar verji velferðarbótum. Aðrir fögnuðu nýju reglunum sem kveða á um að á sumum svæðum þurfi frumbyggjar að verja að minnsta kosti helmingi bótanna í mat og aðrar nauðsynjar. Er þessu ætlað að draga úr eyðslu fólks í áfengi og fjárhættuspil. Velferðarbætur yrðu einnig tengdar skólagöngu barna. Sumir vara þó við því að svona aðgerðir, sem eiga bara við frumbyggja, gætu brotið jafnréttislög.
Mest lesið Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Innlent Stríðið muni halda áfram út vikuna Erlent Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Erlent Trump: Khamenei látinn Erlent Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Innlent Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Innlent Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Innlent Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Sjá meira