Erlent

Gerði keisaraskurð 15 ára

Fimmtán ára drengur gerði keisaraskurð á barnshafandi konu undir eftirliti foreldra sinna, sem bæði eru læknar, í tilraun til að komast í heimsmetabók Guinnes. Aðgerðin var tekin upp á myndband. Faðirinn sýndi starfssystkinum sínum í indversku læknasamtökunum myndbandið og var í kjölfarið tilkynnt að athæfið væri ólöglegt og siðlaust.



Faðirinn, sem gæti verið ákærður auk þess að missa læknisréttindi sín, sýnir enga iðrun og sakar hina læknana um afbrýðisemi. Hann segist hafa þjálfað son sinn í þrjú ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×