Erlent

Abbas fordæmir Hamas

Fólk frá Úkraínu sem búsett var á Gaza avr glatt í bragði er því var ekið inn í Ísrael í gær.
Fólk frá Úkraínu sem búsett var á Gaza avr glatt í bragði er því var ekið inn í Ísrael í gær. fréttablaðið/ap

Ísarelsher skaut flugskeytum á tvo eldflaugaskotpalla á Gaza í gær í fyrstu loftárásinni frá því að Hamas-samtökin lögðu undir sig Gaza í síðustu viku. Engar fréttir bárust af mannfalli eða meiðslum í árásinni sem var svar við eldflaugaárás á Ísrael. Fyrr um daginn fóru ísraelskir skriðdrekar inn á Gaza og fjórir létu lífið í skothríð.



Margir íbúar Gaza-strandarinnar eru fullir ótta um að yfirtaka Hamas-samtakanna á Gaza muni hafa í för með sér aukið ofbeldi og ringulreið á svæðinu. Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, gagnrýndi Hamas harkalega í sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar í gær. Kallaði hann liðsmenn samtakanna „morðóða hryðjuverkamenn". Sakaði hann þá um að vilja koma á fót eigin ríki á Gaza.



Hundruð Gaza-búa bíða við Erez-landamærastöðina að Ísrael eftir að verða hleypt í gegn. Varnarmálaráðherra Ísraels fyrirskipaði hernum í gær að hleypa í gegn þeim flóttamönnum sem þyrftu nauðsynlega á læknisaðstoð að halda. Unglingi með hvítblæði og tveimur langveikum sjúklingum var hleypt í gegn skömmu síðar. Erlendir ríkisborgarar, búsettir á Gaza, fengu líka að fara til Ísraels.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×