Pólverjar einangraðir í ESB 21. júní 2007 04:00 Kaczynski-tvíburarnir, forseti og forsætisráðherra Póllands, telja að hagsmunum Póllands í ESB vegið. Nordicphotos/afp
Meginmarkmiðið á leiðtogafundi Evrópsambandsins, sem hefst í Brussel í dag, er að ná samkomulagi um að bjarga því sem bjargað verður af hinum strandaða stjórnarskrársáttmála sambandsins. Á þetta leggur þýska stjórnin ofuráherslu, en hún lýkur formennskumisseri sínu í ESB um mánaðamótin. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, bindur ekki síst vonir við að hinn nýi og athafnaþyrsti forseti Frakklands, Nicolas Sarkozy, muni reynast henni öflugur liðsauki í að ná þessu markmiði. Helsta hindrunin í vegi fyrir því að þetta gangi eftir er andstaða ráðamanna í Póllandi, sem gekk í sambandið fyrir þremur árum. Pólska stjórnin hótar að beita neitunarvaldi gegn áformunum um nýjan og umfangsminni sáttmála í stað stjórnarskrársáttmálans. Pólski forsætisráðherrann, Jaroslaw Kaczynski, hefur gengið svo langt að segja að það væri „vert að deyja" fyrir þá útgáfu af atkvæðavægiskerfi sem Pólverjar leggja til í staðinn fyrir hið svonefnda kerfi „tvöfalds meirihluta" sem samið var um í stjórnarskrársáttmálanum og almenn sátt er um að verði komið í framkvæmd. Pólverjar telja að þeir eigi á hættu að tapa meira vægi í ESB-kerfinu en þeir geta sætt sig við. Ekkert annað aðildarríki hefur lýst stuðningi við pólsku tillöguna. Djúpstæðir fyrirvarar Breta gegn vissum öðrum þáttum stjórnarskrársáttmálans sem aðrir vilja bjarga yfir í nýjan sáttmála geta líka sett strik í reikninginn. Þetta verður síðasti leiðtogafundurinn sem Tony Blair situr. Hann mun láta af embætti í næstu viku. Merkel, Sarkozy og aðrir stuðningsmenn nýs sáttmála segja að nauðsynlegt sé að endurvekja kjarnaþætti stjórnarskrársáttmálans - sem strandaði þegar kjósendur í Frakklandi og Hollandi höfnuðu fullgildingu hans fyrir tveimur árum - til þess að Evrópusambandið geti beitt sér með skilvirkum hætti í alþjóðamálum. Öll aðildarríkin 27 eru sammála um að einhverrar uppfærslu sé þörf á ákvarðanatöku- og stofnanakerfi sambandsins eftir að aðildarríkjum fjölgaði um tólf frá því síðasta slíka uppfærslan var ákveðin árið 2000.
Mest lesið Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Innlent Stríðið muni halda áfram út vikuna Erlent Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Erlent Trump: Khamenei látinn Erlent Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Innlent Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Innlent Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Innlent Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Sjá meira