Erlent

Veitingahúsagestir fórnarlömb í Mogadishu

Mogadishu séð úr lofti
Mogadishu séð úr lofti Getty Images

Minnst sjö veitingahússgestir fórust þegar uppreisnarmenn skutu flugskeyti á veitingastað í Mogadishu í Sómalíu í dag. Um 400 hermenn frá Úganda á vegum Afríkubandalagsins eru nú komnir til landsins að aðstoða við aðra rúmlega 3000 að halda uppreisnarmönnum í skefjum.

Ofbeldi hefur stigaukist í broginni undanfarna tvo mánuði og hafa tugir óbreyttra borgara fallið fyrir hendi upprisnarmanna. Afríkubandalagið áætlar að senda fleiri hermenn til landsins til að reyna að halda uppreisnarhópum í skefjum en hefur gengið illa að finna þann herafla sem þykir þurfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×