Erlent

Á þriðja tug manna fórust

Á þriðja tug manna fórust þegar indónesísk farþegaflugvél brotlenti á flugvelli í Yogyakarta í gær. Flestir þeirra sem fórust urðu eldi að bráð sem kviknaði í flakinu við brotlendinguna.

Meira en 115 manns sluppu hins vegar úr flakinu, sumir þó illa særðir.

Eftirlifandi farþegar, sumir blóðugir og örmagna, sögðu vélina hafa hrist mikið þegar hún var að lenda. Síðan sentist hún út af flugbrautinni, braut niður girðingu og nam loks staðar á hrísgrjónaakri.

„Skyndilega var kominn reykur í farþegarými vélarinnar, hún skall á flugbrautinni og lenti úti á hrísgrjónaakri," sagði íslamski klerkurinn Dien Syamsudin í útvarpsviðtali. „Ég sá útlending. Það var eldur í fötunum hans og ég stökk út um neyðarútganginn."

Um nítjan útlendingar voru um borð í vélinni, nærri helmingur þeirra frá Ástralíu.

Undanfarna mánuði hafa stór slys verið óvenjutíð í Indónesíu. Seint í desember sökk farþegaferja í óveðri á Javahafi og fórust meira en 400 manns með henni. Fáeinum dögum síðar hrapaði farþegaþota í hafið og fórust með henni 102 manns. Þá sökk skip skammt út af höfninni í Jakarta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×