Erlent

Lögregla hefur lýst eftir manni

Gerry og Kate McCann Foreldrarnir segjast þjakaðir af sektarkennd.
Gerry og Kate McCann Foreldrarnir segjast þjakaðir af sektarkennd. MYND/AP

Lögreglan í Portúgal skýrði í gær frá því að nú sé leitað að hvítum manni á aldrinum 35 til 40 ára sem liggur undir grun um að hafa rænt hinni fjögurra ára gömlu Madeleine McCann af hóteli í Portúgal þann 3. maí síðastliðinn.

Foreldrar Madeleine, þau Gerry og Kate McCann, komu fram í viðtali á bresku sjónvarpsstöðinni Sky í gær og sögðust þjökuð af sektarkennd fyrir að hafa skilið tvö ung börn sín eftir ein á hótelherberginu meðan þau fóru að fá sér að borða.

Þau sögðust ekki geta hugsað sér að fara heim til Bretlands án dóttur sinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×