Pólitísk spenna stigmagnast í Úkraínu 26. maí 2007 06:15 Sérsveitarmenn stóðu vörð við skrifstofu ríkissaksóknara meðan á mótmælum stuðningsmanna Janúkovits stóð í gær. MYND/AP
Viktor Júsjenkó, forseti Úkraínu, tilkynnti í gær að hann tæki yfir stjórn hermanna sem heyra undir innanríkisráðuneyti Úkraínu. Innanríkisráðuneytið hafnaði hins vegar fyrirskipun forsetans þar sem hún væri ólögleg að sögn talsmanns ráðuneytisins sem sagði „glæpsamlegt að framfylgja ólöglegum fyrirskipunum". Innanríkisráðherrann er bandamaður forsætisráðherra Úkraínu, Viktors Janúkovits, sem er höfuðandstæðingur Júsjenskós. Spennan hefur stigmagnast undanfarnar vikur á milli Júsjenkós og Janúkovits, og þessi fyrirskipun Júsjenkós er talin benda til aukins ótta um að til mögulegra átaka komi. Í yfirlýsingu frá forsetaembættinu segir að fyrirskipunin sé nauðsynleg „til að fyrirbyggja að hermenn innanríkisráðuneytisins séu notaðir í hag pólitískra afla sem ógna þjóðaröryggi Úkraínu". 32.000 hermenn og 220.000 lögreglumenn heyra undir innanríkisráðuneytið en fyrirskipun Júsjenkós nær aðeins til hermannanna sem Oleksandr Kihtenko hershöfðingi, bandamaður Júsjenkós, leiðir. Mikil spenna hefur verið í Úkraínu frá því að Júsjenkó leysti upp þing 2. apríl síðastliðinn og boðaði til kosninga á þeim grundvelli að Janúkovits væri með ólöglegum hætti að auka við þingmeirihluta sinn í þeim tilgangi að sölsa undir sig völd. Þingmenn hafa hins vegar hundsað fyrirskipun Júsjenkós sem þeir segja brjóta gegn stjórnarskránni. Viktor Júsjenkó Spennan magnaðist enn á fimmtudaginn þegar Júsjenkó rak ríkissaksóknara Úkraínu, Svyatoslav Piskun, úr embætti á þeim grundvelli að Piskun, sem er þingmaður úr liði Janúkóvits, geti ekki setið sem ríkissaksóknari meðfram þingmennsku. En óvissa um hvort að sitjandi þing sé löglegt flækir brottreksturinn. Fyrirskipun Júsjenkós um að leysa upp þing er nú til meðferðar hjá stórnlagadómstóli Úkraínu. Júsjenkó og Janúkovits hafa báðir samþykkt að hlíta úrskurði dómstólsins en málsmeðferð hefur dregist vegna fyrirskipana Júsjenkós um brottrekstur nokkurra dómara dómstólsins, þar á meðal yfirdómarans.
Mest lesið Vaktin: Sautján vélar á röngum velli og flugferðum aflýst Innlent Tíu manns í árekstri á Suðurlandi Innlent Sakfelling Steinu staðfest Innlent Bein vaxið yfir augun og fólk afmyndast í andliti við notkun peptíða Innlent Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Innlent Mette boðar óvænt til kosninga Erlent Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt Innlent Voru að tína dópið úr töskunni þegar löggan réðst til atlögu Innlent Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Erlent Vilja borgarlest í stað borgarlínu Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Sjá meira