Erlent

Forseti Írans í Hvíta-Rússlandi

Ahmadinejad sagði í gær að hann teldi Lúkasjenkó einn af sínum bestu vinum.
Ahmadinejad sagði í gær að hann teldi Lúkasjenkó einn af sínum bestu vinum. MYND/AFP

Samband Írans og Hvíta-Rússlands hefur náð stigi „hernaðarlega mikilvægrar samvinnu“ að sögn forseta Hvíta-Rússlands, Alexanders Lúkasjenkó.

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, kom til Hvíta-Rússlands í gær í tveggja daga heimsókn til að endurgjalda heimsókn Lúkasjenkós til Írans í nóvember. Ríkin tvö eiga það sameiginlegt að vera upp á kant við Evrópusambandið og Bandaríkin. Íran sætir viðskiptabanni Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna vegna kjarnorkuáætlunar landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×