Erlent

Stefnt að veigaminni sáttmála

Jose Manuel Barroso og Angela Merkel formaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og kanslari Þýskalands hafa reynt að finna lausnir á deilum um stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins.
Jose Manuel Barroso og Angela Merkel formaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og kanslari Þýskalands hafa reynt að finna lausnir á deilum um stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins. MYND/AP

Æðstu ráðamenn Evrópusambandsríkjanna eru, þótt hljótt fari, byrjaðir að gera breytingar á stjórnarskrársáttmálanum sem felldur var í þjóðaratkvæðagreiðslum tveggja aðildarríkjanna fyrir tveimur árum.

Hugmyndin er sú að sáttmálinn verði miklu minni í sniðum en upphaflega var stefnt að og hugsanlega verði aðeins gerðar veigaminni breytingar á stofnsáttmála Evrópusambandsins.

Þýskaland, sem nú fer með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins, hefur stjórnað leynilegum samningaviðræðum með nokkrum embættismönnum frá hverju aðildarlandi, með það í huga að finna einfalda leið út úr ógöngum stjórnarskrársáttmálans.

Stefnt er að því að hafa náð niðurstöðu fyrir leiðtogafund í Berlín dagana 21. til 22. júní næstkomandi.

Afar skiptar skoðanir eru þó milli ríkjanna um hvernig framhaldið eigi að verða en málamiðlunarhugmyndir Þjóðverja eru meðal annars þær að hætta að tala um stjórnarskrá, sleppa ákvæðum um söng og fána Evrópu og sömuleiðis hætta við að stofna nýtt embætti utanríkisráðherra Evrópusambandsins. Einnig þykir líklegt að ekkert verði úr mannréttindaskrá Evrópusambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×