Erlent

Nýir vopnahléssamningar?

Öryggi ofar vopnahléi. Rohitha Bogollagama, utanríkisráðherra Srí Lanka.
Öryggi ofar vopnahléi. Rohitha Bogollagama, utanríkisráðherra Srí Lanka.

Stjórnarher Srí Lanka gerði á mánudag loftárás á eina bækistöð Tamíltígra og viðurkenndi í kjölfarið að semja þyrfti upp á nýtt um vopnahlé milli stríðandi fylkinga í landinu. Vopnahléð hefði reglulega verið brotið á báða bóga og öryggi þjóðarinnar væri mikilvægara en vopnahlé.

Vopnahléinu var komið á fyrir milligöngu norskra erindreka árið 2002. Síðan hafa árásir verið tíðar en samt segjast stríðandi aðilar hafa virt vopnahléið og einungis gripið til árása til að svara öðrum árásum.

Um tugur íslenskra friðargæsluliða er enn að störfum í eftirlitssveitunum með vopnahléinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×