Erlent

Krárnar finna fyrir samdrætti

Sala á áfengi hefur dregist saman um ellefu prósent síðan reykingabann var sett á skoskum krám fyrir tæpu ári. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar þarlends sambands vínveitingamanna. Starfsfólki hefur verið fækkað á þriðjungi kránna á sama tíma.

Andy Kerr, heilbrigðisráðherra Skota, er ötull talsmaður reykingalaganna. Hann gagnrýnir könnun veitingamanna og segir hana ekki sýna fram á tengsl bannsins við fækkun starfsfólks.

Einnig væri úrtak könnunarinnar takmarkað, en henni svöruðu 530 krár. BBC greinir frá þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×