Erlent

Rússar brjóta kurteisisreglur

Matti VAnhanen
Matti VAnhanen

Finnski forsætisráðherrann Matti Vanhanen hefur lýst yfir stuðningi við eistnesk stjórnvöld í ágreiningnum við Rússa um styttuna í Tallinn og telur þá kröfu Rússa fráleita að eistneska ríkisstjórnin segi af sér.

Vanhanen telur rússnesku stjórnmálamennina hafa með þessari kröfu brotið alþjóðlegar kurteisisreglur stjórnmálamanna sem eru í heimsókn í landi með lýðræðislega kjörna ríkisstjórn.

Óeirðir komu nýlega upp í Tallinn eftir að eistnesk stjórnvöld ákváðu að færa styttu af sovéskum hermanni frá torgi í miðborginni í kirkjugarð hermanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×