Erlent

Neitar að segja af sér í bráð

Tzipi Livni og Ehud Olmert. Livni sagðist að fundi þeirra loknum hafa sagt honum að hann ætti að segja af sér. Hún hætti þó við að segja af sér sjálf.
Tzipi Livni og Ehud Olmert. Livni sagðist að fundi þeirra loknum hafa sagt honum að hann ætti að segja af sér. Hún hætti þó við að segja af sér sjálf. MYND/AP

Á neyðarfundi ríkisstjórnar Ísraels, sem Ehud Olmert forsætisráðherra kallaði saman í gær, sagðist hann ætla að sitja áfram í embættinu þrátt fyrir háværar kröfur um afsögn.

Tzipi Livni utanríkisráðherra var meðal þeirra sem hvöttu hann til að segja af sér vegna skýrslu rannsóknarnefndar, þar sem Olmert og Amir Peretz varnarmálaráðherra eru harðlega gagnrýndir fyrir mistök í tengslum við Líbanonstríðið í sumar.

Olmert sagðist ekki ætla að segja af sér fyrr en hann væri búinn að koma í framkvæmt öllum þeim tillögum sem fram koma í skýrslu nefndarinnar.

Avigdor Yizthaki, leiðtogi stjórnarmeirihlutans á þingi, sagði þó af sér í gær. Í gærkvöldi kallaði Kadima, flokkur Olmerts, jafnframt saman neyðarfund vegna málsins.

Þótt Olmert hafi ekki viljað segja af sér í gær situr hann enn undir miklum þrýtingi og í kvöld hefur verið boðaður fjölmennur mótmælafundur í Tel Aviv.

Hassan Nasrallah, leiðtogi Hezbollah, sagðist í gær bera virðingu fyrir erkióvinum sínum í Ísrael vegna þess hvernig þeir hafa tekið á stríðinu í Líbanon. Hann sagði nefndina nú hafa staðfest yfirlýsingar sínar að ísraelski herinn hafði beðið ósigur.

„Það hlakkar ekkert í mér,“ sagði Nasrallah samt. „Það á alla virðingu skilið að rannsóknarnefnd sem Olmert skipaði hafi fordæmt hann.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×