Sjálfsstæðissinnum spáð naumum sigri 3. maí 2007 06:15 Alex Salmond Leiðtogi skoskra aðskilnaðarsinna vill fá að sýna hvað Skotar geta gert, án afskipta Englendinga. MYND/AFP
Bretland, AP Í þessari viku eru liðin 300 ár frá því Skotland og England sameinuðust svo úr varð Stóra-Bretland. Flokkur skoskra þjóðernissinna, SNP, sem berst fyrir sjálfstæði Skotlands, gæti sem hægast orðið sigurvegari í þingkosningunum sem haldnar verða í Skotlandi í dag. Leiðtogi SNP, Alex Salmond, leggur alla áherslu á að flokkurinn fái nægan styrk á þinginu til að geta sýnt það næsta kjörtímabilið að hann sé fær um að stjórna landinu. „Þetta snýst um að sýna hvað við getum gert í stjórn,“ segir hann. „Þá getum við, árið 2010, beðið kjósendur í Skotlandi um umboð í þjóðaratkvæðagreiðslu til að taka frekari skref í átt að sjálfstæði.“ Skoska dagblaðið The Scotsman birti í gær skoðanakönnun sem spáir SNP töluverðum sigri, þótt heldur hafi fylgi hans minnkað síðan í síðustu könnun fyrir fimm vikum. Samkvæmt nýju könnuninni fær SNP 43 þingsæti en Verkamannaflokkurinn 42. Frjálslyndir demókratar yrðu síðan þriðji stærsti flokkurinn með 23 þingmenn en Íhaldsflokkurinn aðeins 17. Græningjar fá svo eitt þingsæti og aðrir flokkar samtals þrjá. Á skoska þinginu sitja 129 þingmenn þannig að meirihlutastjórn þarf að hafa stuðning 65 þingmanna hið minnsta. SNP þyrfti því væntanlega að fá Frjálslynda flokkinn í lið með sér til að geta myndað stjórn, en hingað til hafa Frjálslyndir verið í meirihlutasamstarfi með Verkamannaflokknum. Fyrir Verkamannaflokkinn yrðu það töluverð tíðindi að annar stjórnmálaflokkur fái fleiri atkvæði, því Verkamannaflokkurinn hefur fengið flest atkvæði flokka í öllum kosningum sem haldnar hafa verið í Skotlandi í meira en hálfa öld. Það gæti orðið sérlega vandræðalegt fyrir arftaka Tonys Blair forsætisráðherra ef Verkamannaflokknum farnast illa í Skotlandi. Um allt Bretland er reyndar stór kosningadagur í dag því kosið er til sveitarstjórna og úrslitin gætu haft töluverð áhrif á stöðu breska Verkamannaflokksins og ríkisstjórnar Blairs. Í Wales er einnig kosið til þings, sem hefur takmarkað heimastjórnarvald líkt og í Skotlandi.
Mest lesið Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Innlent „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Miðflokki fatast flugið Innlent Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Innlent Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Innlent Lausir endar í Edition-málinu Innlent „Dylgjur um menntastig“: Túlkun afbrotatölfræði innflytjenda þarfnist þekkingar Innlent Vara við krefjandi aðstæðum á höfuðborgarsvæðinu Innlent Sambandið við Evrópu þurfi ekki að vera já eða nei spurning Innlent Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Erlent Fleiri fréttir Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Sjá meira