Erlent

Sendiráð Eista njóti verndar

Flutt Minnismerkið komið á nýja staðinn í kirkjugarði í Tallinn.
Flutt Minnismerkið komið á nýja staðinn í kirkjugarði í Tallinn. MYND/AP

Erindrekar Evrópusambandsins þrýstu á rússnesk stjórnvöld í gær að sjá til þess að eistneska sendiráðið í Moskvu nyti tilhlýðilegrar verndar, en fjöldi ungra Rússa hefur setið um það síðustu daga og gert aðsúg að starfsmönnum þess, þar á meðal sendiherranum Marinu Kaljurand.

Umsátursliðið er reitt þeirri ákvörðun eistneskra stjórnvalda að láta flytja minnismerki um sigur Rauða hersins í síðari heimsstyrjöld frá torgi í miðborg Tallinn inn í kirkjugarð í borginni. Er hafist var handa við að flytja styttuna á föstudaginn kom til átaka milli lögreglu og ungmenna af rússneskumælandi minnihlutanum í Eistlandi.

„Við mælumst eindregið til þess að rússnesk stjórnvöld standi við skuldbindingar sínar samkvæmt Vínarsáttmálanum um diplómatísk samskipti,“ sagði Christiane Hohmann, talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Hún sagði að nefnd sendiherra ESB-ríkja vildi sem fyrst eiga fund í rússneska utanríkisráðuneytinu til að koma þessum skilaboðum á framfæri.

Kaljurand sendiherra hafði áður greint frá því að rússnesk ungmenni, sem fylgja núverandi valdhöfum í Kreml að málum, hefðu reynt að ráðast á sig er hún reyndi að halda blaðamannafund í Moskvu. Hún sagði einnig að tölvuþrjótar sem meðal annars notuðu tölvur skráðar af rússnesku ríkisstjórninni hefðu brotist inn á opinberar heimasíður Eistlandsstjórnar.

Minnismerkið umdeilda, „Bronshermanninn“, álíta Eistar almennt tákn um sovéskt hernám og ofríki Moskvuvaldsins í hálfa öld í landi þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×