Erlent

Rússar fengu engu framgengt

Táragas í Osló. Hópur mótmælenda safnaðist saman í Osló til að mótmæla ráðherrafundi Nató.
Táragas í Osló. Hópur mótmælenda safnaðist saman í Osló til að mótmæla ráðherrafundi Nató. MYND/AP

Atlantshafsbandalagið ætlar ekki að láta Rússa kúga sig til að fallast á samning um takmörkun á hefðbundnum vopnum í Evrópu, þrátt fyrir hótanir Rússa um að virða ekki þennan sama samning.

Þetta sagði Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri Nató, undir lokin á tveggja daga fundi utanríkisráðherra bandalagsins í Osló í gær.

Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir að Rússar muni ekki framfylgja ákvæðum samningsins fyrr en Natóríkin geri slíkt hið sama, en þau vilja ekki staðfesta samninginn fyrr en Rússar hafa dregið herlið sitt frá Moldóvu og Georgíu.

„Það er engin breyting og það verður engin breyting á afstöðu bandalagsríkjanna,“ sagði de Hoop Scheffer í gær.

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra sat fundinn fyrir Íslands hönd og lagði meðal annars áherslu á að samráð yrði haft við Rússa um fyrirhugað eldflaugavarnakerfi Bandaríkjanna í Póllandi og Tékklandi.

Á fundinum var samþykkt að næsti leiðtogafundur Nató yrði haldinn í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu, vorið 2008. Rúmenía fékk aðild að Nató árið 2004 ásamt sex öðrum ríkjum. Búist er við því að á næsta leiðtogafundi verði Albaníu, Makedóníu og Króatíu boðin aðild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×