Erlent

Þráðlaust net á baðströndinni

Uppsetning þráðlausa netsins kostar tæpar 2,5 milljónir.
Uppsetning þráðlausa netsins kostar tæpar 2,5 milljónir. MYND/AP

Þeir sem eiga erfitt með að slíta sig úr sambandi við umheiminn í sumarleyfum geta varpað öndinni léttar þar sem nú er hægt að flatmaga á ströndinni og tengjast þráðlausu neti á bað-ströndinni við bæinn Castelldefels á Spáni.

Fimm loftnet voru sett upp á ströndinni og er þetta í fyrsta sinn sem boðið er upp á slíka þjónustu á strönd á Spáni.

Það eina sem eftir á að leysa er hvernig verja má fartölvurnar gegn sandinum, að sögn bæjarfulltrúans Carme Sanchez.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×