Erlent

Handtekinn vegna ritgerðar

Átján ára framhaldsskólanemi í Illinois í Bandaríkjunum, Allen Lee að nafni, var handtekinn fyrir að skila inn ritgerð sem yfirvöld segja ofbeldisfulla og truflandi.

„Í síðustu setningunni sagði ég að kennsluaðferðir kennarans gætu leitt til skotárásar í skólanum,“ sagði Lee og bætti við að ritgerðin hefði verið skrifuð í gríni.

Lee hefur verið vísað úr skólanum og á yfir höfði sér ákæru fyrir ósæmilegt framferði.

Honum var sleppt úr haldi lögreglu gegn fimm þúsund króna tryggingu og á að mæta fyrir rétt 18. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×