Erlent

Skutu 92 ára konu til bana

Þrír lögreglumenn voru í gær ákærðir fyrir að skjóta 92 ára gamla konu, Kathryn Johnston, til bana í Atlanta í Bandaríkjunum í nóvember þegar þeir réðust inn á heimili hennar.

Lögreglu hafði borist ábending um að fíkniefnaviðskipti hefðu átt sér stað í íbúðinni. Engin fíkniefni fundust við leit í íbúðinni.

Mennirnir, sem voru óeinkennisklæddir, réðust inn án aðvörunar og konan snerist til varnar með skammbyssu. Mennirnir skutu þá til baka með fyrrgreindum afleiðingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×