Erlent

Öfgafullir þjóðernissinnar grunaðir

Handtaka Lögregla færir einn hinna grunuðu af vettvangi.
Handtaka Lögregla færir einn hinna grunuðu af vettvangi. MYND/AP

Ókunnir árásarmenn myrtu í gær þrjá starfsmenn hjá kristinni bókaútgáfu í borginni Malatya í Tyrklandi. Fólkið var bundið á höndum og fótum og skorið á háls þegar að var komið. Einn var þá enn með lífsmarki, en dó á sjúkrahúsi skömmu síðar, að sögn lögreglu. Eitt fórnarlambanna kann að hafa verið Þjóðverji, en ekkert fékkst staðfest að svo komnu máli um þjóðerni hinna myrtu.

Fjórði maðurinn komst undan árásarmönnunum með því að stökkva út um glugga. Hann var á sjúkrahúsi með höfuðáverka og önnur meiðsl, en ekki í lífshættu.

Lögregla handtók fjóra menn, grunaða um að hafa framið árásina. Hún rannsakaði einnig hvort verið gæti að maðurinn sem stökk út um gluggann hefði verið í hópi árásarmannanna.

Öfgaþjóðernissinnar í Tyrklandi hafa áður beint spjótum sínum að Zirve-útgáfunni í Malatya, sem meðal annars hefur dreift Biblíum. Saka þeir útgáfuna um að reka áróður fyrir trúskiptum, sem þeir álíta örgustu goðgá í landi þar sem 99 prósent íbúanna eru múslímar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×