Erlent

Súkkulaði-Jesús veldur deilum

Listasafn í New York hefur hætt við sýningu þar sem súkkulaðihöggmynd af Jesú Kristi hefur verið til sýnis.

Ástæðan er áköf mótmæli kaþólsks trúarhóps í landinu, sem taldi ekki við hæfi að sýningin væri haldin um páskana, stærstu trúarhátíð kristinna manna.

Kiera McCaffrey, talsmaður trúarhópsins, sagði sýninguna árás á kristna menn.

„Þeim myndi aldrei detta í hug að sýna súkkulaðistyttu af Múhameð spámanni nöktum á meðan á Ramadan stæði,“ sagði hún og vísaði þar í trúarhátíð múslima.

Höfundur verksins, Cosimo Cavallaro, er þekktur fyrir að nota mat í verkum sínum.

Þakti hann eitt sinn veggi hótelherbergis með mozzarella-osti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×