Erlent

Aukinn þrýstingur á lausn fanganna

Íranar hrópa slagorð gegn Bretlandi á fjöldafundi í Teheran, höfuðborg Írans, í gær, til stuðnings handtöku bresku hermannanna.
Íranar hrópa slagorð gegn Bretlandi á fjöldafundi í Teheran, höfuðborg Írans, í gær, til stuðnings handtöku bresku hermannanna. MYND/AFP

Evrópusambandið krafðist þess í gær að Íranar slepptu án tafar og skilyrðislaust bresku hermönnunum sem þeir hafa haft í haldi í viku og varaði við því að gripið yrði til „viðeigandi aðgerða“ hlíti írönsk stjórnvöld því ekki.

ESB styður yfirlýsingu breskra stjórnvalda um að hermennirnir hafi verið í íraskri lögsögu þegar þeir hafi verið handteknir og sé handtakan því brot á alþjóðalögum. Írönsk stjórnvöld halda því staðfastlega fram að bresku hermennirnir hafi verið inni í íranskri lögsögu.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna lýsti á fimmtudagskvöld áhyggjum yfir deilunni og í gær kölluðu rússnesk stjórnvöld eftir því að Sameinuðu þjóðirnar gerðu óháða rannsókn á handtökunni.

Írönsk stjórnvöld hafa fordæmt afskipti ESB og Sameinuðu þjóðanna af deilunni og segja tilraunir Bretlands til að fá þriðja aðila ekki hjálpa til.

Myndband birtist í írönsku sjónvarpi í gær af þremur bresku hermannanna þar sem einn þeirra biðst afsökunar á að hafa farið inn í íranska lögsögu „án leyfis“. Áður hafði myndband af eina kvenkyns fanganum verið birt og þrjú bréf hennar þar sem hún biðst einnig afsökunar. Bresk stjórnvöld fordæmdu meðferðina á föngunum og sögðu írönsk stjórnvöld nota þá í áróðursskyni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×