Erlent

Taldir hafa vanvirt þjóðsöng

Menntamálayfirvöld í Tókýóborg hafa refsað 35 kennurum fyrir að standa ekki upp til að heiðra þjóðsönginn við nýlega afstaðnar útskriftarathafnir.

Þrír kennaranna 35 voru reknir í hálft ár úr starfi, 12 voru hýrudregnir og aðrir 20 hlutu formlega áminningu, að því er Kyodo-fréttastofan greindi frá. Frá því að þjóðernissinninn Shintaro Ishihara varð fylkisstjóri í Tókýó árið 2003 hafa yfirvöld skyldað kennara til að votta þjóðsöngnum og -fánanum virðingu sína við skólaathafnir.

Gagnrýnendur segja þjóðsönginn vera tákn um hernaðarhyggju fortíðarinnar í Japan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×