Erlent

Óeirðir brutust út í Chile

Að minnsta kosti 32 chileskir lögreglumenn slösuðust og 819 manns voru handteknir í óeirðum í höfuðborg landsins, Santiago, og nokkrum öðrum borgum.

Óeirðirnar brutust út á fimmtudagsmorgun í kjölfar mótmæla námsmanna í tilefni af „Degi hinna ungu vígamanna“ þegar chileskir vinstrimenn minnast tveggja ungra bræðra sem lögregla myrti árið 1985.

Mótmælendur settu upp logandi vegatálma og voru sumir hverjir vopnaðir. Einhverjir létu greipar sópa í verslunum.

Einn lögreglumaður var sagður alvarlega særður eftir að hafa verið skotinn þegar hann reyndi að hindra mótmælendur í að ræna stórmarkað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×