Erlent

Hafna tillögu um klámveflén

Frá fundarstað ICANN í Lissabon.
Frá fundarstað ICANN í Lissabon. MYND/AP

Stjórn alþjóðastofnunarinnar ICANN, sem hefur umsjón með veflénum á internetinu og reglum þar að lútandi, hafnaði í gær tillögu um að búið yrði til veflénið „.xxx“ fyrir klámsíður á netinu.

Margir þeirra sem halda úti klámsíðum sem og talsmenn trúarlegra samtaka höfðu gagnrýnt áformin. Þá hafði Kanadastjórn einnig varað við því í vikunni að innrétting sérléns fyrir klámefni gæti komið ICANN í þá vafasömu stöðu að teljast vera að skipta sér af innihaldi vefsíðna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×