Erlent

Íranar yfirheyra bresku fangana

Írönsk stjórnvöld greindu frá því í gær að verið væri að yfirheyra bresku hermennina fimmtán sem teknir voru höndum á föstudaginn til að komast að því hvort þeir hefðu „viljandi eða óviljandi“ farið inn í íranska lögsögu. Er þetta fyrsta merki þess að írönsk stjórnvöld séu að leita að leið út úr deilunni.

Bresk stjórnvöld neita því staðfastlega að hermennirnir hafi verið staddir í íranskri lögsögu.

Íranskir embættismenn sögðu í gær hugsanlegt að hermennirnir yrðu ákærðir fyrir njósnir og að hafa verið í óleyfi inni í íranskri lögsögu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×