Erlent

Söguleg sátt á N-Írlandi

Sambandssinnar veifa fána Bretlands og Norður-Írlands þegar þeir ganga í fylgd hermanna sem reyna að verja þá gegn grjótkasti frá þjóðernis­sinnum í Belfast árið 2003.
Sambandssinnar veifa fána Bretlands og Norður-Írlands þegar þeir ganga í fylgd hermanna sem reyna að verja þá gegn grjótkasti frá þjóðernis­sinnum í Belfast árið 2003. MYND/nordicphotos/afp

norður-írland, ap Leiðtogar stærstu stjórnmálaflokka mótmælenda og kaþólikka á Norður-Írlandi náðu í gær samkomulagi á sögulegum fundi um að mynda heimastjórn 8. maí næstkomandi.

Ian Paisley, leiðtogi Lýðræðissinnaða sambandsflokksins, og Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, tilkynntu um samkomulagið á blaðamannafundi í gær í þinghúsinu sem staðsett er í Stormont- kastala í höfuðborginni Belfast.

Fundurinn var sögulegur vegna þess að leiðtogarnir hafa aldrei fundað áður augliti til auglitis. Paisley hefur hingað til neitað að ræða beint við Adams vegna tengsla Sinn Fein við hryðjuverkasamtökin Írska lýðveldisherinn (IRA) sem hafa lagt niður vopn.

„Við megum ekki leyfa réttlátri óbeit okkar á hryllingi og hörmungum fortíðarinnar verða hindrun í vegi þess að skapa börnum okkar betri og stöðugri framtíð,“ sagði Paisley á fundinum. Adams sagði mótmælendur og kaþólikka hafa átt í átökum í norðausturhluta Írlands öldum saman en að þetta samkomulag „tákni upphaf nýs tímabils í stjórnmálum á þessari eyju“.

Lýðræðissinnaði sambandsflokkurinn, flokkur mótmælenda, hlaut meirihluta atkvæða í kosningunum 7. mars og Sinn Fein, flokkur kaþólikka, var með næstflest atkvæði. Í kjölfar kosninganna gáfu bresk stjórnvöld flokkunum frest til gærdagsins til að mynda heimastjórn ella yrði þingið leyst upp.

Eftir að tilkynnt var um samkomulagið í gær lýstu bresk stjórnvöld yfir að þau myndu leggja fram frumvarp til flýtiafgreiðslu um að þing Norður-Írlands, sem á að skipa tólf manna stjórn, geti starfað fram til 8. maí. Þingið kom í fyrsta skipti saman eftir kosningar í gær.

Forsætisráðherrar Bretlands og Írlands, Tony Blair og Bertie Ahern, fögnuðu samkomulaginu. „Allt sem við höfum unnið að undanfarin tíu ár hefur verið undirbúningur fyrir þessa stund,“ sagði Blair. Ahern sagði að hann og Blair myndu gæta þess að lokaskrefin yrðu stigin í friðarferlinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×