Erlent

Níutíu prósent heróínsins eru frá Afganistan

Draumsóleyjar í Afganistan.
Fátækir bændur landsins eiga bágt með að rækta aðra plöntu en valmúann.
Draumsóleyjar í Afganistan. Fátækir bændur landsins eiga bágt með að rækta aðra plöntu en valmúann. MYND/Reuters

Níutíu prósent þess heróíns sem selt er á svörtum markaði í Lundúnum eiga rætur sínar að rekja til blómstrandi valmúaframleiðslu í suðlægari héruðum Afganistans. Þetta segir Goldsmith lávarður, saksóknari þar í landi.

Goldsmith segir ópíumrækt í Afganistan eina helstu ógn við stöðugleika og framþróun þessa stríðshrjáða ríkis. Sameinuðu þjóðirnar ásökuðu nýverið innanríkisráðuneyti landsins um mútuþægni og meðfylgjandi linkind við ópíumsmyglara.

Ópíumframleiðsla Afgana jókst um 49 prósent í fyrra. Er hún um 6.700 tonn, sem nægja til að framleiða 670 tonn heróíns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×