Erlent

Norður-Kórea er að opnast smám saman

Í gærmorgun slitnaði upp úr sexhliða viðræðum um kjarnorkuvinnslu Norður-Kóreu, sem haldnar hafa verið í Peking í Kína. Kim Kye-Gwan, aðalsamningafulltrúi Norður-Kóreu, yfirgaf viðræðurnar eftir að peningasending frá Bandaríkjunum upp á 25 milljónir dollara fékkst ekki afgreidd út úr banka í Makaó, þrátt fyrir að um það hafi verið samið fyrirfram.

Óljóst er hvort eða hvenær hægt verður að halda viðræðunum áfram, en verði það ekki fljótlega gæti reynst erfitt að standa við það markmið að kjarnorkueftirlit Sameinuðu þjóðanna staðfesti í síðasta lagi þann 14. apríl að vinnsla í stærsta kjarnakljúfi Norður-Kóreu hafi verið stöðvuð.

Geir Helgeson, fræðimaður við Norrænu Asíustofnunina, NIAS, segir samt alrangt að líta svo á að viðræðurnar standi eða falli með millifærslu á peningum. Norður-Kóreumenn hafi fullan vilja til að ná sáttum, þeir vilji bara ekki láta troða sér um tær og vilji frekar tefla á tæpasta vað í samningum heldur en að sætta sig við niðurlægingu.

„Þeir eru haldnir einhvers konar minnimáttarkennd," segir Helgesen, sem er einn helsti sérfræðingur Norðurlandanna í málefnum Norður-Kóreu. „Auk þess eru þeir vanir því að orð leiðtogans standi í einu og öllu. Ef leiðtoginn segir eitthvað, þá getur hann látið það gerast hér og nú."

Helgesen segist hafa fengið margar vísbendingar um að Kim Jong Il, leiðtogi Norður-Kóreu, hafi áttað sig á því þegar hungursneyðin geisaði þar á síðasta áratug að gamla kommúníska efnahagskerfið gengi ekki lengur. Árið 2002 hafi viðamiklum umbótum verið hrundið af stað og sú þróun sé enn í gangi, þótt hægt virðist miða þegar horft er á ástandið utan frá.

„Ástæðan fyrir því hvað þetta tekur langan tíma er sú hvað stjórnkerfinu tókst á sínum tíma vel að móta fólk og kenna því - við köllum það yfirleitt heilaþvott - að þetta sé rétta kerfið, þannig að þeir þurfa í raun og veru að skipta algerlega um hugarfar á ný."

Helgesen segir yngri kynslóð embættismanna í Norður-Kóreu eiga auðvelt með að stilla sig inn á þessa breyttu stefnu, en eldri kynslóðin eigi hins vegar afar erfitt með það. „Hún er enn föst í kaldastríðshugarfarinu."

Ástandið í Norður-Kóreu hefur lagast mikið síðan hungursneyðin mikla var í algleymingi, að sögn Helgesens. „Þegar ég kom þangað í vetur hitti ég fólk frá hjálparstofnunum sem sagðist telja að hungursneyðinni væri lokið. Skortur ríkir ennþá og vörugæðin eru ekki mikil, en fólki tekst að bjarga sér og sjá fyrir sér. Þjóðfélagið er líka smám saman að opnast."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×