Erlent

Vikublað sýknað af ákæru

Sýknaður Philippe Val, ritstjóri Charlie-Hebdo, segir umræðuna sem réttarhaldið skapaði hafa verið nauðsynlega. nordicphotos/afp
Sýknaður Philippe Val, ritstjóri Charlie-Hebdo, segir umræðuna sem réttarhaldið skapaði hafa verið nauðsynlega. nordicphotos/afp

Dómstóll í París sýknaði í gær háðsádeilu-vikublaðið Charlie-Hebdo af ákæru sem múslimasamtök áttu frumkvæði að gegn því, fyrir að hafa birt skopteikningar af Múhameð spámanni.

Blaðið, ásamt ritstjóra þess, Philippe Val, voru sökuð um að hafa „opinberlega níðst á hópi fólks vegna trúar hans“. Hefði Val verið fundinn sekur hefði hann átt yfir höfði sér hálfs árs fangelsi og sekt að andvirði um tveggja milljóna króna.

Val sagði úrskurðinn sigur fyrir múslima sem vilja halda trúmálum sem einkamálum. Um fimm milljónir múslima búa í Frakklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×