Erlent

Ástæður til að líka við ESB

Í evrópskum fjölmiðlum er afmælis ESB einnig minnzt með ýmsu móti þessa dagana. Brezka dagblaðið The Independent birti á miðvikudag lista yfir „50 ástæður til að líka við Evrópusambandið“.

Meðal atriða sem tíunduð eru á listanum og ástæða er til að hafa í huga þegar rætt eru um þróun Evrópusambandsins eru þessi: 1. Endi bundinn á stríðsrekstur milli Evrópuþjóða. 2. Lýðræði blómstrar í 27 aðildarríkjum. 3. Lönd sem voru fátæk eins og Írland, Grikkland og Portúgal njóta nú efnahagslegrar velgengni.

4. Stærsta innri markaði heims komið á með um 500 milljónir íbúa. 5. Réttindi og áhrif neytenda stórefld. ... 30. Frjáls för fólks án vegabréfa yfir landamæri hinna 15 aðildarríkja Schengen-samningsins. ... 42. ESB færir aðildarríkjunum meira fullveldi, ekki minna. Hér er vísað til samanburðar við EFTA-ríkin, þar á meðal Íslands, sem þurfa að innleiða ESB-löggjöf án þess að hafa nein áhrif á mótun hennar, ólíkt aðildarríkjum ESB.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×