Erlent

Njósnarar verða þefaðir uppi

Tvíburabræðurnir Lech Kaczynski forsætisráðherra og bróðir hans Jaroslav Kaczynski forseti leggja mikla áherslu á að koma upp um fyrrverandi njósnara kommúnista.
Tvíburabræðurnir Lech Kaczynski forsætisráðherra og bróðir hans Jaroslav Kaczynski forseti leggja mikla áherslu á að koma upp um fyrrverandi njósnara kommúnista. MYND/AP

Í síðustu viku gengu í gildi í Póllandi lög sem hafa það markmið að koma upp um fyrrverandi njósnara sem störfuðu fyrir alræðisstjórn Kommúnistaflokksins fyrr á tímum.

Allt að 700 þúsund manns gætu þurft að gera hreint fyrir sínum dyrum vegna laganna, sem gera stjórnvöldum skylt að kanna hvort fólk í 53 starfsgreinum hafi starfað sem njósnarar eða uppljóstrarar. Þar á meðal má nefna kennara, blaðamenn, skólastjórnendur, stjórnarerindreka, embættismenn sveitarfélaga, forstjóra ríkisfyrirtækja, ritstjóra og útgefendur, svo fremi sem þeir eru fæddir fyrir 1. ágúst 1972. Fyrir eru í landinu sambærileg lög sem ná til stjórnmálamanna sem náð hafa kjöri og margra embættismanna svo sem dómara, en sú löggjöf náði aðeins til 28 þúsund manna.

Komi í ljós að opinberir embættismenn hafi stundað njósnir missa þeir embætti sitt og eiga ekki afturkvæmt í tíu ár, en einkafyrirtæki fá að ráða hvað þau gera við stjórnendur sem reynast hafa verið njósnarar. Gagnrýnendur laganna segja þau kalla á allt of mikla vinnu við rannsóknir í gríðarstóru skjalasafni gömlu leyniþjónustunnar. Afleiðingin verði sú að fjölmargir þurfi að búa við þá óvissu árum saman að geta ekki hreinsað nafn sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×